Claudio Albrecht forstjóri verður einnig stjórnarformaður
Gengið hefur verið frá samningum um endurfjármögnun Actavis Group í samvinnu við lánardrottna félagsins.
Félagið starfar nú á heilbrigðum fjárhagslegum grunni og hefur þann styrk og sveigjanleika sem þarf til að styðja við stefnu félagsins um áframhaldandi vöxt, einkum í Suður-Evrópu, Japan, Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku og til að auka markaðshlutdeild á núverandi mörkuðum.
Félagið mun einnig leggja sérstaka áherslu á líftæknilyf (biosimilars), sem eru dýr í þróun og krefjast því sterkrar fjárhagsstöðu.
Þessar breytingar ásamt öflugum rekstri og nýlegri ráðningu Claudio Albrecht sem forstjóra setja Actavis í kjörstöðu til að ná markmiðum félagsins um vöxt til framtíðar.
Endurfjármögnunin er gerð með fullum stuðningi stjórnendateymis Actavis og lánardrottna.
Claudio Albrect forstjóri Actavis verður starfandi stjórnarformaður. Í stjórn munu jafnframt setjast reyndir aðilar úr lyfjageiranum.
Claudio Albrecht, forstjóri Acavis Group:
„Þar sem endurfjármögnuninni er lokið er Actavis nú í styrkri stöðu til að vinna samkvæmt stefnu félagsins að framtíðarvexti þess. Þetta þýðir meiri stöðugleika og betri tækifæri fyrir starfsfólk Actavis, bæði á Íslandi og annarsstaðar í veröldinni.“
Gert er ráð fyrir að endurfjármögnuninni verði formlega lokið að uppfylltum venjubundnum skilyrðum á næstu mánuðum.